Það hefur reynst erfitt fyrir AC Milan að losa sig við Theo Hernandez í sumar en hann hafnaði risatilboði frá sádi arabíska félaginu Al Hilal.
Milan hafnaði 20 milljón evra tilboði frá Atletico Madrid í leikmanninn en það virðist ekki vera eina vandamálið.
Milan hafnaði 20 milljón evra tilboði frá Atletico Madrid í leikmanninn en það virðist ekki vera eina vandamálið.
Hernandez er uppalinn hjá Atletico en hann gekk til liðs við erkifjendurna í Real Madrid árið 2017 og ítalski miðillinn Gazzetta dello Sport segir að stuðningsmennirnir vildu ekki sjá „svikarann snúa aftur."
Hernandez er 27 ára en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Milan en félagið vill fá um 30 milljónir punda fyrir hann.
Athugasemdir