fös 13. júní 2025 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það var enginn möguleiki á því að Selma Sól yrði með
Icelandair
EM KVK 2025
Selma Sól Magnúsdóttir.
Selma Sól Magnúsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Rosenborg, hefði líklegast verið á listanum yfir leikmenn sem eru að fara á EM ef hún hefði ekki verið að glíma við meiðsli.

Þessi meiðsli komu upp fyrir nokkrum mánuðum síðan og eru flóknari en þau voru talin í fyrstu.

Hún á enn langt í land og verður því ekki með landsliðinu í Sviss, sem er svekkjandi fyrir hana og liðið.

„Selma á töluvert langt í land. Það var enginn möguleiki á því að hún yrði með," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, á fréttamannafundi í dag.

„Hún er ekki búin að jafna sig eftir aðgerðina sem hún fór í mánaðarmótin janúar/febrúar. Það voru engar líkur á því að hún gæti tekið þátt."
Athugasemdir
banner