Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 11:30
Brynjar Ingi Erluson
Pioli að taka við Fiorentina - Vill halda Alberti
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ítalski þjálfarinn Stefano Pioli mun yfirgefa Al Nassr í Sádi-Arabíu og taka við Fiorentina í heimalandinu.

Fabrizio Romano segir að það sé nánast frágengið að Pioli verði ráðinn nýr þjálfari Fiorentina á næstu dögum eftir að hafa eytt síðustu mánuðum í Sádi-Arabíu.

Pioli þekkir vel til hjá Fiorentina eftir að hafa þjálfað liðið frá 2017 til 2019.

Hann mun taka við góðu búi af Raffaele Palladino sem var látinn fara eftir tímabilið.

Samkvæmt FirenzeViola hefur Pioli gefið græna ljósið á að halda íslenska landsliðsmanninum Alberti Guðmundssyni. Hann sér hann sem mikilvægan leikmann í sóknarleiknum, sem spilar svipað hlutverk og Rafael Leao hjá AC Milan.

Pioli er spenntur fyrir því að þjálfa Albert sem er á láni hjá Fiorentina frá Genoa, en á morgun mun Fiorentina taka endanlega ákvörðun um það hvort það kaupir hann eða ekki.

„Ég get ekki sagt þér það núna, ég bara veit það ekki sjálfur. Ég held að 15. júní, þá taka Fiorentina ákvörðun. Þá veit ég meira, hvort það verði í Fiorentina eða einhversstaðar annarsstaðar, sagði Albert við Fótbolta.net eftir landsleik Íslands og Skotlands fyrr í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner