
Grínistinn- og Alþingismaðurinn Jón Gnarr verður heiðursgestur á leik ÍR og Leiknis í Breiðholti í kvöld.
Jón tilkynnti það nýverið að hann væri orðinn stuðningsmaður ÍR.
Jón tilkynnti það nýverið að hann væri orðinn stuðningsmaður ÍR.
„Ég hef í nokkurn tíma verið að leita mér að fótboltafélagi íslensku til að halda með. Hingað til hef ég haldið með öllum og engum, en nú ætla ég að breyta því og er búinn að velja mér lið," sagði Jón.
„Það sem hefur helst truflað mig er þessi tilhneiging Íslendinga að kalla fótbolta knattspyrnu. Þetta orð er komið frá Bjarna Jónssyni frá Vogi sem fann upp þetta nýyrði árið 1910 og mér bara leiðist þetta... Þetta er fótbolti fyrir mér og það er eðlilegt mál - hitt er bara eitthvað skrítið."
„Ég er búinn að finna eitt lið sem ég svo sannarlega haldið með og það er ÍR. Ég get haldið með ÍR þar sem ÍR heitir bara Íþróttafélag Reykjavíkur, ekkert knattspyrna neitt," sagði Jón og nefndi svo fleiri ástæður fyrir því af hverju hann ætlar að halda með ÍR en meðal annars hefur hann æft júdó þar og er Ingigerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri ÍR, frænka hans.
ÍR-ingar sáu sér leik á borði og ákváðu að bjóða Jóni sem heiðursgesti á völlinn í kvöld.
„Og munum, þetta heitir fótbolti ekki knattspyrna!" segir í tilkynningu ÍR-inga.
Athugasemdir