Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 14:27
Brynjar Ingi Erluson
Íslendingaliðið rétt missti af Evrópusæti - Íris lagði upp sigurmark Stabæk
Kvenaboltinn
Ingibjörg var lykilkona í liði Bröndby á tímabilinu
Ingibjörg var lykilkona í liði Bröndby á tímabilinu
Mynd: Bröndby
Íslendingalið Bröndby rétt missti af Evrópusæti fyrir næsta tímabil þrátt fyrir að hafa unnið OB, 1-0, í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir byrjuðu hjá Bröndy í leiknum í dag, en liðið þurfti að vinna og treysta á að HB Köge myndi tapa fyrir AGF.

Bröndby gerði sitt en Köge vann á meðan 2-1 sigur á AGF og því ljóst að Bröndy fer ekki í Evrópubikarinn í haust.

Liðið hafnaði í 4. sæti deildarinnar með 38 stig, jafnmörg og Köge, sem var hins vegar með betri markatölu.

Íris Ómarsdóttir lagði upp sigurmark Stabæk í 1-0 sigrinum á Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni.

Hún hefur verið frábær á tímabilinu og komið að 7 mörkum í 13 leikjum sínum í deildinni. Stabæk er í 5. sæti með 16 stig, fimmtán stigum frá toppnum.
Athugasemdir
banner