banner
   fös 13. júní 2025 15:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íþróttagallinn síðast en hvað verður það núna?
Icelandair
EM KVK 2025
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steini var í íþróttagallanum á síðasta móti.
Steini var í íþróttagallanum á síðasta móti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, var vel dressaður þegar hann mætti á fréttamannafund í höfuðstöðvum Icelandair í dag.

Þorsteinn var í flottum jakkafötum eins og annað starfsfólk KSÍ sem var á fundinum er hópur Íslands fyrir EM var tilkynntur.

Steini er á leið á sitt annað stórmót sem landsliðsþjálfari en á síðasta Evrópumóti var hann í jogginggallanum á hliðarlínunni.

Í lok fundarins í dag var hann spurður að því hvort klæðnaðurinn í dag væri merki um að hann ætlaði sér að vera vel dressaður á hliðarlínunni í sumar.

„Ég verð ekki í jakkafötum," sagði Steini og brosti.

„Það verður svona blanda af íþróttafötum og einhverju öðru."

Þá tók Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, orðið og sagði: „Hann var píndur í jakkafötin á þessum fundi."

Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir