Franska félagið Marseille hefur sett sig í samband við sænska undrabarnið Roony Bardghji, sem mun yfirgefa FCK þegar samningur hans rennur út um mánaðamótin.
Bardghji er 19 ára gamall vængmaður sem hefur spilað 74 leiki og skorað 15 mörk fyrir aðallið FCK.
Hann varð yngsti leikmaður í sögu félagsins í nóvember 2021 er hann kom inn á hjá liðinu.
Tveimur árum síðar stal hann fyrirsögnunum þegar hann skoraði sigurmark FCK í dramatískum 4-3 sigri á Manchester United í Meistaradeildinni, sem var um leið fyrsta Meistaradeildarmark hans.
Hann sleit krossband í maí á síðasta ári en sneri aftur á völlinn í mars og náði alls að spila fimm deildarleiki með FCK á tímabilinu.
Bardghji tjáði FCK á dögunum að hann ætlaði sér ekki að framlengja samning sinn sem rennur út um mánaðamótin og er hann þegar með tilboð í höndunum frá Porto.
Fabrizio Romano segir Marseille nú komið inn í baráttuna og hafi þegar sett sig í samband við sænska unglingalandsliðsmanninn, en fleiri félög hafa sýnt honum áhuga undanfarið og verður fróðlegt að sjá hvar hann mun spila á næstu leiktíð.
Athugasemdir