Javier Mascherano, þjálfari Inter Miami í Bandaríkjunum, segist ekki geta óskað fyrrum samherja sínum Xabi Alonso alls hins besta í nýja starfi hans hjá Real Madrid.
Mascherano og Alonso spiluðu saman á miðjunni hjá Liverpool frá 2007 til 2009.
Félagarnir eru þokkalega nánir en Alonso hélt til Real Madrid árið 2009 og ári síðar samdi Mascherano við Barcelona.
Mascherano stýrir Inter Miami á HM félagsliða í opnunarleiknum í kvöld, en hann ræddi aðeins um Alonso og nýtt starf hans hjá Real Madrid fyrir leikinn.
„Ég hef ekki talað við hann. Alonso er einn af þeim bestu sem ég spilaði með á ferlinum, en ég óska honum ekki alls hins besta því hann er hjá Real Madrid,“ sagði Mascherano í léttum tón.
„Ég er samt viss um að hann muni reynast þeim frábær. Hann vann ótrúlegt starf hjá Bayer Leverkusen, er frábær persóna og naut ég þeirra forréttinda að spila við hlið hans í þrjú ár,“ sagði Mascherano í lokin.
Inter Miami spilar við Al Ahly um miðnætti í kvöld, en liðið mætir einnig Palmeiras og Porto. Alonso mun stýra Real Madrid í fyrsta sinn gegn Al Hilal á miðvikudag. Madrídingar munu einnig mæta Pachuca og Salzburg.
Athugasemdir