Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Hans besta tímabil hingað til en við höfum náð að vinna án hans"
Sneri aftur í Val frá Þór síðasta haust.
Sneri aftur í Val frá Þór síðasta haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn endurheimta að öllum líkindum miðjumennina Marius Lundemo og Tómas Bent Magnússon í leikmannahóp sinn fyrir leikinn í kvöld gegn Stjörnunni.

Þeir eru í það minnsta báðir byrjaðir að æfa eftir meiðsli. Valsmenn verða þó án Birkis Heimissonar, eins síns besta leikmanns á tímabilinu, en hann meiddist skömmu fyrir landsleikjahlé.

„Lundemo er byrjaður að æfa á fullu og líka Tómas Bent, sem er mjög jákvætt," sagði Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, við Fótbolta.net.

Birkir fór í myndatöku fyrir rúmri viku síðan, um smávægilega tognun er að ræða.

„Birkir Heimis er enn ekki orðinn klár, en er á batavegi, verður betri með hverjum degi. Hann er ekki klár í að fara í fótbolta, þetta tekur einhverjar tvær vikur í viðbót held ég, en ég er ekki sérfræðingur. Hann hefur náð undanfarin ár að koma alltaf fyrr til baka úr meiðslum, er í geggjuðu standi sem hjálpar honum."

„Þetta var pínu óheppilegt, meiddist á æfingu daginn fyrir leikinn gegn Aftureldingu. Birkir er búinn að vera frábær í sumar og lykilhlekkur í því hvernig við höfm spilað. Það er alltaf högg að missa leikmenn sem eru búnir að vera á mikilli uppleið. Ég held að þetta sé hans besta tímabil hingað til, en aftur á móti höfum við spilað tvo leiki og náð að vinna án hans. Við höfum náð að finna aðrar lausnir,"
segir Túfa.

Birkir, sem er 25 ára miðjumaður, hefur spilað sem bakvörður og mikið komið inn á miðsvæðið. Birkir hefur lagt upp fjögur mörk í byrjun móts og skorað eitt mark.

Leikur Stjörnunnar og Vals hefst klukkan 19:15 og ver fram á Samsungvellinum í Garðabæ.
Athugasemdir
banner