Nico Williams, leikmaður Athletic Bilbao, er einn eftirsóttasti biti sumarsins, en það gæti vel farið svo að hann verði áfram hjá uppeldisfélaginu.
Williams er 22 ára gamall vængmaður sem hefur farið á kostum undanfarið ár.
Hann var einn af bestu mönnum spænska landsliðsins sem vann Evrópumótið á síðasta ári, en tók annað tímabil með Athletic þrátt fyrir að vera sterklega orðaður við Barcelona.
Spánverjinn er efstur á óskalista Arsenal og Bayern München í sumar, en Bayern hefur fundað tvisvar með föruneyti leikmannsins og eru fleiri fundir á döfinni. Þetta segir Fabrizio Romano.
Williams er falur fyrir 58 milljónir evra, sem er ekki vandamál fyrir Arsenal né Bayern, en launakröfur hans er stærsta hindrunin.
Athletic hefur þá ekki gefið upp von um að halda Williams og mun það bjóða honum nýjan samning á næstu vikum.
Athugasemdir