Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   fös 13. júní 2025 21:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Breiðholtinu
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
Lengjudeildin
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er ánægður með sigurinn," sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR, eftir sigur gegn Leikni í Breiðholtsslag í Lengjudeildinni í kvöld.

„Það var liðsheildin," sagði Jói aðspurður hvað hefði skapað þennan sigur. „Við vorum orðnir mjög þreyttir. Liðsheildin og sterkur varnarleikur - sem hefur einkennt okkur - skóp þennan sigur."

Lestu um leikinn: ÍR 1 -  0 Leiknir R.

„Heilt yfir var þetta nokkuð jafn leikur, en við vorum yfir og náðum að halda þetta út."

Það gengur vel hjá ÍR-ingum sem eru á toppi deildarinnar.

„Það er bara búið að ganga vel og við erum líka búnir að vinna hart fyrir hverju einasta stigi. Við erum ekki lið sem er að dansa áfram. Við erum 'hardworking' lið og vel rútínerað," sagði Jói en má segja að ÍR sé leiðinlegt og pirrandi lið fyrir andstæðinga að mæta?

„Það er akkúrat það sem við ætlum að vera. Við verðum að elska það."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan. Það er gaman að vera ÍR-ingur þessa dagana.
Slapp
banner
banner
banner