Paul Pogba er í viðræðum við Mónakó en franska félagið hefur boðið honum tveggja ára samning.
Pogba er 32 ára gamall franskur miðjumaður sem hefur ekki spilað fótbolta síðan í september 2023 eftir að hafa fengið 18 mánaða bann fyrir að falla á lyfjaprófi.
Hann var talinn einn efnilegasti miðjumaður heims á sínum tíma en hann lenti í miklum meiðslavandræðum þegar hann var hjá Manchester United.
Sky Sports greinir frá því að hann er einnig með tilboð á borðinu frá ónefndu spænsku liði.
Ansu Fati, leikmaður Barcelona, er nálægt því að ganga til liðs við Mónakó.
Athugasemdir