Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 15:58
Brynjar Ingi Erluson
LengjudeildIn: Þrjú rauð er Völsungur og Keflavík skildu jöfn - Þróttur upp í þriðja sætið
Völsungur gerði jafntefli við Keflavík
Völsungur gerði jafntefli við Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þróttarar eru í ágætis málum
Þróttarar eru í ágætis málum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýliðar Völsungs gerðu 1-1 jafntefli við Keflavík í 8. umferð Lengjudeildar karla á PCC-vellinum á Húsavík í dag. Á sama tíma vann Þróttur R. 2-0 sigur á Selfoss á JÁVERK-vellinum og kom sér upp í 3. sæti deildarinnar.

Húsvíkingar höfðu byrjað tímabilið nokkuð vel miðað við aðstæður, en vegna framkvæmda á vellinum spilaði liðið sex af fyrstu sjö leikjum sínum á útivelli.

Liðið náði í þrjá sigra í þessum leikjum eins og Keflavík.

Völsungur skoraði tvö mörk á átta mínútna kafla í fyrri hálfleiknum, en bæði voru dæmd af vegna rangstöðu. Jakob Héðinn Róbertsson var maðurinn sem setti boltann í netið í bæði skiptin, en loks kom löglegt mark hjá framherjanum.

Rafnar Máni Gunnarsson laumaði boltanum inn á Jakob sem setti boltann í netið og fóru heimamenn með eins marks forystu inn í hálfleikinn.

Hálftíma fyrir leikslok var Jakob Héðinn að sleppa í gegn þegar Marin Brigic tók hann niður. Rautt spjald var niðurstaðan og réttilega svo.

Manni færri tókst Keflvíkingum að sækja vítaspyrnu aðeins nokkrum mínútum síðar er Inigo Albizuri Arruti braut af sér í teignum. Hann fékk sitt annað gula og þar með rautt og aftur orðið jafnt í liðum.

Stefan Ljubicic skoraði úr spyrnunni en Ívar Arnbro Þórhallsson var alls ekki langt frá því að verja vítið.

Á lokakafla leiksins fengu heimamenn í Völsungi sitt annað rauða spjald er Gunnar Kjartan Torfason sparkaði boltanum í burtu eftir að aukaspyrna var dæmd. Annað gula spjald hans og þar með rautt, en leikurinn var flautaður af stuttu eftir það.

Lokatölur 1-1 og er Völsungur áfram í 8. sæti með 10 stig en Keflavík fer upp í 5. sæti með 11 stig.

Þróttarar í þriðja sætið

Þróttur R. lagði Selfoss að velli, 2-0, á JÁVERK-vellinum í fjörugum leik.

Bæði lið komu sér í góð færi í fyrri hálfleiknum. Kári Kristjánsson setti boltann rétt yfir markið af stutt færi áður en gestirnir vildu fá vítaspyrnu stuttu síðar er Liam Daði Jeffs féll í teignum, en Elías Ingi Árnason, dómari leiksins, gaf lítið fyrir það og sagði Liam að standa á lappir.

Selfyssingar voru hársbreidd frá því að taka forystuna er Frosti Brynjólfsson hamraði boltanum í slá og aðeins skömmu síðar kom Robert Blakala heimamönnum til bjargar er hann varði skot Liams með andlitinu.

Unnar Steinn Ingvarsson braut ísinn á 38. mínútu. Hann átti lausan skalla sem Blakala varði aftur út á Unnar sem skaut boltanum í fyrsta í opið markið.

Þróttarar héldu áfram að sækja í þeim síðari og var það Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson sem tvöfaldaði forystuna eftir mikinn atgang í teig Selfyssinga. Boltinn skoppaði á milli manna áður en hann barst til Vilhjálms sem bauð upp á laglega bakfallsspyrnu og í netið fór boltinn.

Heimamenn fengu smá von þegar tæpur hálftími var eftir þegar Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, gerði sig sekan um klaufaskap. Boltinn fór í innkast og lék Baldur sér með boltann áður en hann þrumaði honum upp í loftið og fékk að líta sitt annað gula spjald.

Selfoss tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og fór það svo að Þróttur vann, 2-0. Þróttur er nú með 14 stig í 3. sæti deildarinnar, en Selfoss í næst neðsta sæti með 6 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Völsungur 1 - 1 Keflavík
1-0 Jakob Héðinn Róbertsson ('40 )
1-1 Stefan Alexander Ljubicic ('67 , víti)
Rautt spjald: , ,Marin Brigic, Keflavík ('59)Inigo Albizuri Arruti, Völsungur ('66)Gunnar Kjartan Torfason, Völsungur ('94) Lestu um leikinn

Selfoss 0 - 2 Þróttur R.
0-1 Unnar Steinn Ingvarsson ('38 )
0-2 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('59 )
Rautt spjald: Baldur Hannes Stefánsson , Þróttur R. ('64) Lestu um leikinn
Athugasemdir
banner
banner