Bryan Zaragoza hefur átt erfitt uppdráttar hjá Bayern en félagið hlustar á tilboð í hann í sumar.
Zaragoza er 23 ára gamall spænskur vængmaður en hann gekk til liðs við Bayern, fyrst á láni í vetrarglugganum í fyrra frá Granada. Hann gekk alfarið til liðs við Bayern um sumarið en var strax lánaður til Osasuna.

Hann lék aðeins sjö leiki fyrir Bayern en félagið hefur staðfest að það sé opið fyrir því að selja hann í sumar en liðið borgaði um 20 milljónir evra fyrir hann.
Serge Gnabry og Leon Goretzka hafa verið orðaðir frá Bayern en Sky í Þýskalandi segir að útlit sé fyrir að Gnabry verði áfram. Goretzka vill vera áfram en félagið er tilbúið að selja hann.
Athugasemdir