Bournemouth hefur gengið frá öllum helstu pappírum varðandi kaup félagsins á franska vinstri bakverðinum Adrien Truffert, en hann kemur til félagsins frá Rennes.
Fabrizio Romano segir að Rennes hafi samþykkt 11,5 milljóna punda tilboð frá Bournemouth, en kaupverðið getur hækkað upp í 15 milljónir ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Truffert er 23 ára gamall og kemur til með að leysa Milos Kerkez af hólmi sem er á leið til Liverpool.
Frakkinn er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Bournemouth og verður hann kynntur hjá félaginu eftir helgi.
Truffert á 1 A-landsleik með Frökkum og var þá í liðinu sem hafnaði í öðru sæti á Ólympíuleikunum á síðasta ári.
Athugasemdir