Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 12:50
Brynjar Ingi Erluson
Segja Gyökeres hafa hafnað Man Utd
Viktor Gyökeres
Viktor Gyökeres
Mynd: EPA
Portúgalski miðillinn Record segir að sænski framherjinn Viktor Gyökeres hafi hafnað tækifærinu á að ganga í raðir Manchester United í sumar.

Miðillinn heldur því fram að Hasan Cetinkaya, umboðsmaður Gyökeres, hafi tjáð Man Utd að Svíinn hafi ekki áhuga á á því að endurnýja kynni sín með Ruben Amorim fyrir komandi leiktíð.

Man Utd hefur verið í sambandi við Cetinkaya upp á síðkastið í þeirri von um að landa sænsku markavélinni, en miðað við frétt Record þarf United að leita annað.

Gyökeres, sem er 27 ára gamall, skoraði 54 mörk í 52 leikjum með Sporting á síðustu leiktíð.

Amorim þjálfaði hann í byrjun leiktíðar áður en hann tók við United í nóvember.

Record segir einnig að Arsenal hafi lagt fram upphafstilboð í sænska leikmanninn sem nemur um 55 milljónum punda.
Athugasemdir