
Dregið var í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í Bikarkvöldi á RÚV2 í kvöld.
Ríkjandi bikarmeistarar Vals mæta FH á Hlíðarenda á meðan Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti ÍBV á Kópavogsvelli.
Leikirnir fara fram 30. og 31. júlí næstkomandi, en úrslitaleikurinn er spilaður á Laugardalsvelli laugardaginn 16. ágúst.
Valur hefur fimmtán sinnum unnið bikarinn, oftast allra liða, en Breiðablik kemur næst á eftir með þrettán titla. ÍBV hefur tvisvar sinnum unnið bikarinn, en FH aldrei unnið.
Leikirnir:
Valur - FH
Breiðablik - ÍBV
Athugasemdir