Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   fös 13. júní 2025 16:13
Fótbolti.net
Knattspyrnumaður með "þrjú" andlit
ÞRÍR KNATTSPYRNUKAPPAR SAMAN Í EINU ANDLITI!
ÞRÍR KNATTSPYRNUKAPPAR SAMAN Í EINU ANDLITI!
Mynd: Þrír knatt

Út var að koma skemmti- og þrautabókin KNATTSPYRNUÞRAUTIR sem fær alla áhugamenn til að gleyma bæði stund og stað. 

- Þekkirðu leikmennina?

- Geturðu fundið kunnuglegt fótboltaorð í stafarugli?

- Veistu hvernig merki félögin eiga?

- Hvaða þjóðfána eiga heimsmeistararnir?

- Geturðu fundið heiti félaganna í orðaorminum?

- Hvað veistu um íslensk lið?

- En ensk?

- Hverjir eru markverðirnir?

- Hvaða þrír leikmenn leynast í einu andliti?

- Og fleira til!


Þessa geggjuðu bók, sem er eftir Guðjón Inga Eiríksson, verða allir fótboltaáhugamenn að glíma við og ekki spillir fyrir að henni fylgir án endurgjalds veglegur sumarglaðningur, nefnilega hin magnaða bók, STAFRÓF KNATTSPYRNUNNAR, eftir sama höfund.

 Þá er bara að skella legghlífunum undir sokkana, reima á sig takkaskóna og vippa sér síðan í Eymundsson, Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð, eða Bókabúð Grafarvogs og hremma þessar bækur, eins og hinn besti markvörður! Nú, eða bara að panta þær og passa sig svo á því að vera ekki rangstæður þegar þær berast með póstinum.


Athugasemdir
banner
banner