Martinelli til Sádi? - Brentford neitar að lækka sig - Alonso tilbúinn að selja - Elanga á leið til Newcastle
Farið á þrjú stórmót og þetta er besta umhverfið
„Hvað gerðist ekki í þeim leik?"
Ræða forsetans gladdi - „Við sögðum allt sem lá á hjartanu"
Sveindís: Veit ekki hvort þeir hafi séð þetta fyrir sér fyrir nokkrum árum
Bjarni Jó: Sagði að nú vilja Gummi Tóta, Sævar Gísla og allir koma
Haraldur Freyr: Réðum öllu á vellinum
Hrannar Snær: Mjög sáttur með mína frammistöðu það sem af er
Dóri Árna: Slakasti hálfleikurinn í sumar
Maggi Már: Bara einn staður sem þeir eiga að vera á og það er hérna í 270
Siggi Höskulds: Þetta á að skila sigri alveg sama á hvaða velli
Venni: Þetta er algjört lúxusvandamál sem ég glími við
Tómas Bjarki: Þetta er alveg kúnst
Halli Hróðmars: Leikplanið fór út um gluggann snemma í dag
Gunnar Heiðar: Þegar lestin er farin af stað er helvíti erfitt að stoppa hana
Jakob Gunnar: Einhver skrítnasta skottækni sem ég hef séð
Með þrjú stórmót og yfir 100 leiki á bakinu - „Ég fer með það í gröfina"
„Viðurkenning fyrir hana og íslenskan fótbolta"
Vann með Frank Lampard áður en hann tók til starfa hjá KSÍ
Gunnhildur elskar nýtt hlutverk - „Baldvin Leó fékk að fljóta með"
Steini: Ákveðinn lamandi ótti eiginlega
   fös 13. júní 2025 22:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Breiðholtinu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Lengjudeildin
Óðinn Bjarkason.
Óðinn Bjarkason.
Mynd: ÍR
Jón Arnar er á láni hjá Leikni frá KR.
Jón Arnar er á láni hjá Leikni frá KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er mjög góð tilfinning. Það er búið að vera spenna fyrir þessum leik, þetta er 'derby slagur' en Breiðholtið er blátt í dag," sagði Óðinn Bjarkason, leikmaður ÍR, eftir 1-0 sigur gegn Leikni í kvöld.

„Við erum mjög sáttir með þessi þrjú stig. Það var mikill baráttuandi í liðinu. Þetta var ekki fallegasti fótbolti í heimi en við erum sterk liðsheild og gerum þetta allir saman."

Lestu um leikinn: ÍR 1 -  0 Leiknir R.

Óðinn skoraði sigurmark ÍR með skalla í fyrri hálfleik.

„Ég sagði það við Óla (markvörð Leiknis) í leiknum að ég skoraði með skalla á móti honum þegar hann var í Fram í Bestu deildinni í fyrra. Þetta var ekki alveg eins, en var mjög líkt."

Óðinn er á láni hjá ÍR frá KR en í Leiknisliðinu var hann að mæta Jóni Arnari Sigurðssyni, sem er einnig á láni frá KR. Þeir eru góðir félagar.

„Það var mjög gaman að spila á móti honum í dag. Við erum búnir að vera mjög góðir vinir síðan við vorum í 5. flokki og foreldrar okkar eru gríðarlega góðir vinir. Það er geggjað að spila á móti honum en kannski smá skrítið líka," sagði Óðinn.

Varstu eitthvað að reyna að komast inn í hausinn á honum?

„Ég var aðeins að æsa í honum fyrir leik og reyna að komast inn í hausinn á honum. Ég klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því. Ég var ekkert þannig séð að einbeita mér að honum, var bara að spila minn leik fyrst og fremst. Ég er gríðarlega sáttur."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan en Óðinn er gríðarlega sáttur í ÍR þar sem hann er á láni frá KR.
Athugasemdir
banner