Alisson, markvörður Liverpool á Englandi, hefur hafnað tyrkneska félaginu Galatasaray en þetta segir Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi.
Galatasaray er í leit að markverði eftir að Fernando Muslera yfirgaf félagið eftir fjórtán ára dvöl.
Sky segir að Galatasaray hafi gert Alisson stórt tilboð snemma í sumar sem Alisson hafi hafnað.
Alisson er samningsbundinn Liverpool til 2026 en félagið er með möguleika á að framlengja samninginn um ár til viðbótar, sem það mun líklegast gera.
Tímabilið verður gríðarlega mikilvægt fyrir Alisson sem ætlar sér að vera markvörður númer eitt hjá brasilíska landsliðinu á HM á næsta ári.
Hann mun berjast við georgíska markvörðinn Giorgi Mamardashvili um markvarðarstöðuna hjá Liverpool á komandi tímabili.
Athugasemdir