Heimild: BBC
Í efstu stigum fótboltans má út um allt finna leikmenn sem ólust upp í París í Frakklandi. Breska ríkisútvarpið var með umfjöllun um að París sé sú borg sem framleiði langflesta fótboltamenn í hæsta gæðaflokki.
Þrjátíu leikmenn sem spiluðu á HM í Katar fæddust í höfuðborg Frakklands eða nágrenni hennar.
Sao Paulo í Brasilíu var í öðru sæti með tólf leikmenn og London á Englandi í þriðja sæti með átta.
Þrjátíu leikmenn sem spiluðu á HM í Katar fæddust í höfuðborg Frakklands eða nágrenni hennar.
Sao Paulo í Brasilíu var í öðru sæti með tólf leikmenn og London á Englandi í þriðja sæti með átta.
Ellefu Parísarmenn voru í franska landsliðshópnum sem tapaði gegn Argentínu í úrslitaleiknum. Hinir nítján dreifðust um átta landslið; Marokkó, Túnis, Senegal, Gana, Kamerún, Portúgal, Þýskalandi og Katar.
Innflytjendur í úthverfi Parísar sem komu frá fyrrum frönskum nýlendum í Afríku með mikinn fótboltaáhuga er augljóslega risastór ástæða fyrir þessari öflugu útungunarstöð.
Stefna stjórnvalda um að byggja upp hágæða fótboltaaðstöðu í öllum Parísarborgum, meðal annars til til að halda börnum frá vandræðum, hefur verið grundvallaratriði til að gera íþróttina ódýran kost sem er aðgengileg öllum.
„Þú kemur út úr blokkinni þinni og það fyrsta sem þú sérð er fótboltavöllur. Ungt fólk er að leika sér í fótbolta nánast allan daginn," segir Abdelaziz Kaddour, íþróttastjóri FC Montfermeil 93, sem er fjölmennt félag í Seine-Saint-Denis hverfinu sem er með eina hæstu glæpatíðni og mesta atvinnuleysi í Frakklandi.
William Saliba varnarmaður Arsenal fór í það félag eftir að hafa verið hjá AS Bondy, félaginu þar sem franska ofurstjarnan Kylian Mbappe lék sem barn.
„Flestir vellirnir eru litlir. Krakkarnir snerta boltann mikið og með tímanum öðlast þeir mikla tækni, verða öflugir í knattraki, hraða, ákefð, tæklingum og leikskilningi."
Yfir þúsund félög eru á Parísarsvæðinu og njósnarar frá hinni heimsfrægu Clairefontaine akademíu fylgjast vel með og velja hæfileikaríkustu krakkana úr úthverfunum.
„Við tölum um Clairefontaine sem Harvard fótboltans. Mest af minni leikgreind kemur þaðan," segir Sebastien Bassong fyrrum leikmaður Tottenham, Newcastle og Kamerún. „Eina sem þú hugsar um er fótbolti, þú sefur með boltann en umfram allt lærir þú aga. Þessi akademía býr til sigurvegara."
Þrátt fyrir allan þennan hæfileikabrunn hefur Paris St-Germain, eina stórliðið á svæðinu, leitað eftir erlendum stórstjörnum í sitt lið. Nasser Al-Khelaifi eigandi félagsins hefur þó talað um að nú sé að verða breyting á. Innkoma hins sautján ára gamla Warren Zaire-Emery í liðið sé merki um breytta tíma.
Athugasemdir

