Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir: Heimsklassalið leit út eins og meðaljón
Mynd: EPA
Írska landsliðið gerði 1-1 jafntefli gegn Senegal í æfingaleik í gær.

Kasey McAteer, leikmaður Leicester, kom Írlandi yfir en Ismaila Sarr, leikmaður Crystal Palace, jafnaði metin fyrir Senegal.

Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjáflari Írlands en hann var ánægður með sína menn í leikslok.

„Við vörðumst vel sem lið. Við verðum að átta okkur á því að þetta var heimsklassalið, stundum þegar við vorum að verjast án bolta létum við þá líta út eins og meðaljónar," sagði Heimir.

„Ég er aðallega ánægður með það að þeir sköpuðu sér ekki mikið. Kelleher varði einu sinni eða tvisvar vel en fyrir utan það hafði hann ekki mikið að gera sem er gott."

Athugasemdir
banner
banner
banner