Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel: Grealish þarf mínútur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enski landsliðsþjálfarinn Thomas Tuchel var spurður út í Jack Grealish, kantmann Manchester City og enska landsliðsins.

Grealish hefur ekki fengið mikinn spiltíma hjá Man City að undanförnu og er ekki í hópnum sem fer á HM félagsliða í sumar. Hann er því að öllum líkindum að skipta um félag í sumar.

Grealish er 29 ára gamall og var keyptur til Man City fyrir 100 milljónir punda fyrir fjórum árum síðan. Hann á tvö ár eftir af samningnum við City og eru mörg félög áhugasöm um að tryggja sér þjónustu hans.

Leikmaðurinn er með 39 landsleiki að baki fyrir England og er ólíklegt að honum takist að bæta við þann leikjafjölda í sumar. Hann er ekki í landsliðshópi Tuchel í landsleikjahlénu sem er í gangi þessa stundina.

„Grealish þarf mínútur, mínútur og mínútur. Hann þarf að fá meiri spiltíma hjá félagsliði til að vera valinn í landsliðið. Ég er mjög hrifinn af Jack sem leikmanni. Ég elska persónuleikann hans og fótboltahæfileikana. Hann er einstakur leikmaður sem kiknar ekki undir pressu. Það er mjög mikilvægt, hann er frábær í stórleikjum," sagði Tuchel.

„Ég heyrði að City ætlar ekki að taka hann ekki með á HM og það er mín skoðun að hann verður að fá spiltíma ef hann vill spila aftur fyrir landsliðið. Einn af hans sterkustu eiginleikum er að hann verður betri með hverjum leiknum. Jack er sú tegund af leikmanni sem verður sífellt betri og betri þegar hann fær að spila á þriggja daga fresti."
Athugasemdir
banner
banner