Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 16:17
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Blikar skoruðu sex - Flottir sigrar hjá FH og Fram
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísa Lana átti flottan leik í liði FH
Elísa Lana átti flottan leik í liði FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Murielle Tiernan var í gír með Fram
Murielle Tiernan var í gír með Fram
Mynd: Toggi Pop
Breiðablik, FH og Fram unnu öll flotta sigra í 8. umferð Bestu deildar kvenna í dag.

Nýliðar Fram unnu Stjörnuna 3-1 á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.

Lily Anna Farkas kom heimakonum yfir á 9. mínútu. Kamila Pickett átti lága fyrirgjöf á Unu Rós Unnarsdóttur. Í stað þess að taka á móti honum lét hún hann fara í gegnum klofið og á Lily sem skoraði með góðu skoti.

Murielle Tiernan tvöfaldaði forystuna undir lok fyrri hálfleiks með því að pota fyrirgjöf Söru Svanhildar Jóhannsdóttur í netið og fóru heimakonur því með flotta forystu inn í hálfleikinn.

Tiernan gerði annað mark sitt hálftíma fyrir leikslok með skalla eftir hornspyrnu frá Unu Rós.

Birna Jóhannsdóttir náði að minnka muninn fyrir Stjörnuna tæpum tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma en lengra komust Stjörnukonur ekki.

Lokatölur 3-1 og Fram með 12 stig í 5. sæti en Stjarnan í 7. sæti með 9 stig.

Sannfærandi hjá FH

FH-ingar unnu sannfærandi 4-1 sigur á Víkingum á Víkingsvellinum.

FH var betra liðið yfir 90 mínútur. Deja Sandoval stangaði FH í forystu á 23. mínútu eftir hornspyrnu Elísu Lönu Sigurjónsdóttur og sex mínútum síðar bætti Thelma Karen Pálmadóttir við öðru eftir flottan sprett.

Thelma keyrði með boltann inn hægra megin og skaut síðan föstu skoti í fjærhornið, stöng og inn.

Sandra Sigurðardóttir tók upp hanskana aftur í síðasta mánuði eftir að hafa ekki spilað leik í tvö ár. Hún gerði neyðarskipti vegna meiðsla í herbúðum FH.

Hún átti stórkostlega vörslu undir lok hálfleiksins frá Ísfold Marý Sigtryggsdóttur. Ísfold fékk boltann á miðjum teignum og náði skoti meðfram grasinu og í átt að vinstra horninu, en viðbrögðin hjá Söndru voru upp á tíu og varði hún meistaralega.

Sandra hélt áfram að gera vel í markinu í þeim síðari og sannaði það að klassi er varanlegur.

Víkingar héldu meira í boltann í seinni en náðu bara ekki að skapa sér nógu mörg færi.

Það var því ákveðið kjaftshögg þegar Elísa Lana bætti við þriðja marki FH á 79. mínútu. Varamaðurinn Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir átti hornspyrnu út í teiginn og á Elísu sem skoraði með góðu skoti í vinstra hornið.

Víkingar náðu að skora og voru það varamennirnir sem sáu alfarið um það. Linda Líf Boama var með boltann hægra megin, kom honum inn á Júíu Ruth Thasaphong sem framlengdi hann á Örnu Ísold Stefánsdóttur sem skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni.

Á lokamínútu uppbótartímans gerðu FH-ingar endanlega út um leikinn eftir stórkostlega sókn. Hildigunnur Ýr fékk boltann fram, stakk honum inn fyrir á Mayu Hansen sem átti síðan þessa geggjuðu hælsendingu fyrir Thelmu og eftirleikurinn síðan auðveldur.

Flottur sigur FH sem er áfram í 3. sæti með 19 stig en Víkingur í næst neðsta sæti með 4 stig.

Stórsigur Blika

Breiðablik rúllaði yfir nýliða FHL, 6-0, á Kópavogsvelli.

Blikar voru töluvert betri aðilinn í þessum leik og var tímaspursmál hvenær fyrsta markið kæmi. Það gerði Samantha Rose Smith gegn sínum gömlu félögum með þrumuskoti.

Næsta mark Blika kom ekki fyrr en á lokamínútum fyrri hálfleiks er Agla María Albertsdóttir hirti frákast. Keelan Terrell í marki FHL var að eiga stórleik, en í þeim síðari röðuðu Blikar inn mörkunum.

Liðið skoraði fjögur mörk á tíu mínútna kafla. Barbára Sól Gísladóttir skoraði á 50. mínútu og tveimur mínútum síðar komst Birta Georgsdóttir á blað. Flóðgáttir opnuðust og þegar komið var á 55. mínútu skoraði Andrea Rut Bjarnadóttir fimmta mark Blika!

Berglind Björg Þorvaldsdóttir rak síðan síðasta naglann í kistu FHL eftir sendingu frá Birtu.

Blikar gátu vel skorað fleiri mörk en frammistaða Keelan kom í veg fyrir að þetta hafi ekki farið í tveggja stafa tölu.

Sigur Blika kemur liðinu tímabundið á toppinn með 19 stig en FHL er án stiga á botninum.

Úrslit og markaskorarar:

Fram 3 - 1 Stjarnan
1-0 Lily Anna Farkas ('9 )
2-0 Murielle Tiernan ('44 )
3-0 Murielle Tiernan ('62 )
3-1 Birna Jóhannsdóttir ('81 )
Lestu um leikinn

Breiðablik 6 - 0 FHL
1-0 Samantha Rose Smith ('14 )
2-0 Agla María Albertsdóttir ('45 )
3-0 Barbára Sól Gísladóttir ('50 )
4-0 Birta Georgsdóttir ('52 )
5-0 Andrea Rut Bjarnadóttir ('55 )
6-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('60 )
Lestu um leikinn

Víkingur R. 1 - 4 FH
0-1 Deja Jaylyn Sandoval ('23 )
0-2 Thelma Karen Pálmadóttir ('29 )
0-3 Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('79 )
1-3 Arna Ísold Stefánsdóttir ('85 )
1-4 Thelma Karen Pálmadóttir ('93 )
Lestu um leikinn
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur R. 8 7 1 0 20 - 5 +15 22
2.    Breiðablik 8 6 1 1 35 - 7 +28 19
3.    FH 8 6 1 1 17 - 8 +9 19
4.    Þór/KA 8 5 0 3 15 - 13 +2 15
5.    Fram 8 4 0 4 11 - 17 -6 12
6.    Valur 8 2 3 3 9 - 11 -2 9
7.    Stjarnan 8 3 0 5 9 - 19 -10 9
8.    Tindastóll 8 2 1 5 10 - 14 -4 7
9.    Víkingur R. 8 1 1 6 11 - 22 -11 4
10.    FHL 8 0 0 8 3 - 24 -21 0
Athugasemdir
banner
banner