Ásgeir Sigurgeirsson, markahæsti maður KA á tímabilinu, hefur framlengt samning sinn við félagið út 2027.
Húsvíkingurinn hefur verið afdrifaríkur í liði KA-manna síðustu árin eða síðan hann kom frá norska félaginu Stabæk fyrir níu árum síðan.
Ásgeir, sem er 28 ára gamall, er einn leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins með 215 leiki og skorað 55 mörk.
Hann hefur nú framlengt samning sinn við félagið út 2027. Frábærar fréttir fyrir KA-menn, en Ásgeir er markahæsti maður liðsins í Bestu deildinni á þessu tímabili með fjögur mörk.
„Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur leikmaður sem gefur sig ávallt allan í verkefnið að þá er Ásgeir mikill leiðtogi sem drífur liðsfélaga sína áfram. Það er því ákaflega sterkt að hann sé búinn að framlengja samning sinn og að við munum áfram njóta krafta hans næstu árin,“ segir í tilkynningu KA-manna í dag.
KA-menn byrjuðu tímabilið illa en hafa nú sótt átta stig úr síðustu fjórum leikjum og sitja nú í 9. sæti með 12 stig.
Athugasemdir