Arsenal er að ganga frá viðræðum við Chelsea um spænska markvörðinn Kepa Arrizabalaga. Þetta segir inn afar áreiðanlegi David Ornstein hjá Athletic.
Kepa, sem er þrítugur, er dýrasti markvörður allra tíma, en hann var keyptur til Chelsea frá Athletic Bilbao fyrir tæpar 72 milljónir punda árið 2018.
Hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Bournemouth og gerði vel þar, en hann á enga framtíð hjá Chelsea.
Ornstein segir að Arsenal sé nú við það að ganga frá kaupum á honum, en hann verður David Raya til halds og trausts.
Samkvæmt Ornstein mun Arsenal virkja 5 milljóna punda kaupákvæði í samningi Kepa.
Kepa hefur sjálfur samþykkt að ganga í raðir Arsenal og ætti þetta því að vera frágengið á næstu dögum.
Athugasemdir