Dzeko kom inn af bekknum og tryggði sigur
Það er þremur leikjum lokið í undankeppni HM í dag þar sem Harry Kane skoraði eina mark leiksins þegar England heimsótti Andorra.
Búist var við risastórum sigri enska liðsins en heimamenn í liði Andorra vörðust hetjulega og var staðan markalaus í leikhlé.
Kane skoraði í upphafi síðari hálfleiks eftir undirbúning frá Noni Madueke en meira var ekki skorað. Englendingar óðu í færum á meðan heimamenn í liði Andorra áttu einnig sínar rispur, en komust aldrei nálægt því að skora.
Niðurstaðan þægilegur 0-1 sigur Englands þó að lærisveinar Thomas Tuchel hafi eflaust viljað sigra þessa viðureign talsvert stærra.
Liðin mættust í þriðju umferð undankeppninnar og er England með fullt hús stiga. Lærisveinar Tuchel eiga enn eftir að fá mark á sig.
Bosnía er þá komið á topp H-riðils eftir 1-0 sigur gegn San Marínó fyrr í dag. Hinn 39 ára gamli Edin Dzeko kom inn af bekknum á 62. mínútu og skoraði eina mark leiksins skömmu síðar til að tryggja sigur Bosníu. Heimamenn voru mun sterkari aðilinn og óheppnir að sigra ekki stærra en með einu marki.
Að lokum gerðu Malta og Litháen markalaust jafntefli.
Andorra 0 - 1 England
0-1 Harry Kane ('50)
Bosnía 1 - 0 San Marínó
1-0 Edin Dzeko ('66)
Malta 0 - 0 Litháen
Athugasemdir