Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
   lau 07. júní 2025 14:30
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo verður ekki á HM félagsliða
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður allra tíma, hefur staðfest að hann muni ekki spila á HM félagsliða eftir að hafa hafnað tilboðum frá félögum sem taka þátt í mótinu.

Þótt Gianni Infantino, forseti FIFA, hafi lagt til að Ronaldo gæti tekið þátt, þá hafnaði leikmaðurinn þessum möguleika.

„Ég mun ekki vera á HM félagsliða,“ sagði Ronaldo. „Nokkur félög höfðu samband við mig, sum þeirra lögðu fram góð tilboð en ég get ekki tekið þátt í öllu.“

Formaður Fluminense í Brasilíu, Mario Bittencourt, reyndi að fá Ronaldo til liðsins fyrir mótið en umboðsmaður hans, Jorge Mendes, gaf til kynna að Brasilía væri ekki á dagskrá hjá leikmanninum.

Ronaldo mun klára samning sinn við Al-Nassr í Sádi-Arabíu í þessum mánuði og framtíð hans er óljós. Hann hefur gefið í skyn að hann sé að skrifa nýjan kafla í ferilssögu sinni.

Fyrr í vikunni skoraði Ronaldo sigurmark fyrir Portúgal í 2-1 sigri gegn Þýskalandi í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar. Portúgal mætir Spáni í úrslitum á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner