Franski sóknarleikmaðurinn Randal Kolo Muani mun vera áfram hjá Juventus í sumar eftir að félagið náði samkomulagi við Paris Saint-Germain.
Kolo Muani var lánaður til Juventus í janúarglugganum og gerði flotta hluti í ítölsku deildinni þar sem hann skoraði 8 mörk í 16 leikjum.
Lánssamningur leikmannsins rennur út um næstu mánaðamót en Juve tekur þátt á HM félagsliða sem er í gangi þar til um miðjan júlí. Stjórnendur Juve vildu nota Kolo Muani á HM án þess að þurfa að missa hann til PSG um mánaðamótin og sömdu því við ríkjandi Frakklands- og Evrópumeistarana um að framlengja lánssamninginn um tvær vikur.
Kolo Muani er 26 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi sínum við PSG. Hann á 9 mörk í 30 landsleikum með Frakklandi.
Athugasemdir