Cristiano Ronaldo hefur beðið fjölmiðla um að setja ekki of mikla pressu á spænska undrabarnið Lamine Yamal, en þetta sagði hann fyrir úrslitaleik Portúgals og Spánar í Þjóðadeild Evrópu.
Ronaldo þekkir það sjálfur að vera undrabarn. Hann kom til Manchester United frá Sporting Lisbon árið 2003 fyrir 12 milljónir punda sem var þá metfé fyrir táning í enska boltanum, met sem Wayne Rooney sló ári síðar er hann kom frá Everton.
Portúgalinn þekkir pressuna vel sem ungur leikmaður. Í dag er Yamal helsti umræðupunktur á öllum samfélagsmiðlum og verið það síðasta árið, en hann hefur meðhöndlað þá pressu ágætlega.
Ronaldo segir samt fjölmiðlum að sýna nærgætni, enda sé hann aðeins 17 ára gamall.
„Lamine Yamal er að gera mjög vel og að nýta hæfileika sína til fulls. Leyfið stráknum að vaxa.“
„Ekki setja of mikla pressu á hann. Leyfið honum að vera og ná góðum vexti, og takið pressuna af honum. Það er alla vega enginn skortur á hæfileikum, svo mikið er víst,“ sagði Ronaldo.
Þeir tveir mætast í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar á morgun. Portúgal vann Þjóðadeildina árið 2019 á meðan Spánn er ríkjandi meistari.
Athugasemdir