Heimir Guðjónsson þjálfari FH var svekktur með úrslitin en sáttur með spilamennsku síns liðs þegar FH lagði Elfsborg 2-1 á Kaplakrikavelli í 3.umferð forkeppni Evrópudeildarinnar nú í kvöld. FH voru ekki í miklum séns fyrir leikinn eftir 4-1 tap á útivelli en þeir höfðu engu að síður trú á verkefninu og spiluðu oft á tíðum frábæran bolta. En sigur gegn toppliði í sænsku úrvalsdeildinni er jákvætt.
Lestu um leikinn: FH 2 - 1 Elfsborg
,,Jú það var mjög gott en við komumst nú ekki áfram, þetta dugði ekki. Við spiluðum mjög vel í þessum leik og það var frábært hugarfar í liðinu. Þetta var eins og talað var um eftir fyrri leikinn, brekka, en við gerðum allt sem í okkar valdi stóð, sköpuðum góð færi og skoruðum góð mörk," sagði Heimir í samtali við Fótbolta.net.
,,Við lögðum leikinn þannig upp að við ætluðum að pressa þá, við vissum það fyrir leikinn að það var langt síðan þeir spiluðu á alvöru grasi. Mér fannst það ganga vel og við náðum að nýta okkur veikleikana sem voru í varnarleiknum hjá þeim."
,,Við vildum fara lengra í þessari keppni en það tókst ekki, næsti leikur er bara í Eyjum við ÍBV á sunnudaginn og við þurfum að undirbúa okkur vel fyrir hann," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH.
Athugasemdir























