Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Elmar Kári: Búinn að bíða eftir þessu
Maggi: Sýnir trúna sem við erum með
Vuk: Er kannski nær markinu og með meira sjálfstraust
Jón Þór: Stóru vandamálin liggja ekki þar
Rúnar: Hefur fengið að blómstra í þessu hlutverki
Heimir: Þá fer þetta að verða eins og umræðan var árið 2022
Elmar Atli: Maður var búinn að bíða eftir þessu
Auður: Gaman að ná að vinna Þrótt sem voru taplausar í deildinni
Haddi: Gjörsamlega óþolandi hvað sumir mega öskra inn á völlinn
Óli Kristjáns: Ábyrgðin á mér og stelpunum
„Við komumst út úr þessu það er klárt mál"
Davíð Smári: Skjaldarmerki þess sem Vestri stendur fyrir
Óskar Smári: Ótrúlega stoltur af liðinu mínu í dag
Murielle Tiernan: Eina sem þú þarft að gera er að setja hann inn
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Tufa um rauða spjaldið: Okk­ur á bekkn­um fannst hann hlaupa á Bjarna og henda sér niður
Jökull: Hefði viljað sjá okkur vera meira 'ruthless' í byrjun leiks
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
   mið 09. ágúst 2023 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nadía: Selma er alltaf með einhverja bantera inní klefa frá Sölva
Þurfum ekki að breyta því sem við gerum
Ég elska Víking
Ég elska Víking
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Selma kemur með mola frá Sölva. 'Það hjálpar okkur eitthvað'
Selma kemur með mola frá Sölva. 'Það hjálpar okkur eitthvað'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mér finnst við vera það góðar og með það góðan og breiðan hóp.
Mér finnst við vera það góðar og með það góðan og breiðan hóp.
Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
„Við erum allar gríðarlega spenntar fyrir þessu, þetta er alveg geggjað," sagði Nadía Atladóttir, fyrirliði Víkings, í viðtali við Fótbolta.net í dag. Framundan hjá Víkingi er bikarúrslitaleikur gegn Breiðabliki sem fram fer á föstudag.

„Við þurftum að spila núna þrjá leiki vitandi að við værum að fara í úrslitaleikinn og við þurftum að sækja níu stig í þeim leikjum. Við gerðum það og það er mjög gott að fara með það inn í þennan leik; mjög mikilvægt."

„Við höfum aldrei spilað á móti þeim einhvern alvöru leik, allavega ekki sem Víkingur (Víkingur var áður í samstarfi með HK), þannig þetta verður bara geggjaður leikur sem við erum allar spenntar fyrir."

„Við ætlum að halda í okkar; það sem við erum búnar að gera í sumar, búnar að spila mjög vel og ég tel að við þurfum ekki að breyta því sem við gerum. Við kannski föllum aðeins betur til baka, en ætlum samt að pressa og beita góðum skyndisóknum á móti þeim."

„Þær eru góðar, með alla leikmenn upp á tíu, en við getum alveg leyst þetta."


Á leiðinni í úrslitaleikinn hefur Víkingur, sem er í Lengjudeildinni, slegið bæði út Selfoss og FH sem eru í Bestu deildinni. Voru það bestu leikir Víkings í sumar?

„Ekkert endilega, þetta er búið að vera frekar fínt heilt yfir, við stóðum okkur vel og héldum okkur við plönin sem við vorum með í þeim leikjum. Það virkaði. Ef við gerum það aftur þá getur allt gerst."

Karlalið Víkings hefur þrisvar sinnum á síðustu fjórum árum farið í bikarúrslit. Getur kvennaliðið tekið eitthvað frá körlunum í undirbúningnum?

„Já, auðvitað. Selma (Dögg Björgvinsdóttir) er alltaf með einhverja bantera inn í klefa frá Sölva (Geir Ottesen) sem við erum alltaf að læra af. Það hjálpar okkur eitthvað."

Á heima í Víkingi
Nadía átti góð tímabil í 1. deildinni 2020 og 2021 en missti út hluta af tímabilinu 2022 þar sem hún var barnshafandi. Hefur komið upp á síðustu árum að fara frá Víkingi og spila í efstu deild?

„Alls ekki. Mér finnst ég svolítið mikið vera bara heima, þegar ég byrjaði í fótbolta þá var ég í Víkingi og mér líður gríðarlega vel. Ég er ekkert að fara, ég elska Víking."

Gætu gert mjög vel í Bestu
„Auðvitað, ég vona að þessi hópur haldi sér og kannski einhverjar 1-2 styrkingar. Þessi hópur held ég og veit ég að mun gera góða hluti í Bestu deildinni, trúi ekki öðru. 100%, ég held að við værum fyrir miðju í efstu deild, ef ekki bara hærra. Mér finnst við vera það góðar og með það góðan og breiðan hóp. Við gætum gert mjög vel í Bestu deildinni."

Eru Víkingar, sem eru í toppsæti Lengjudeildrinnar, fullkomlega sáttir við tímabilið til þessa.

„Alls ekki, við töpuðum á móti Aftureldingu og erum búnar að gera tvö jafntefli þar sem við hefðum getað gert betur. Það er ekki búið að vera fullkomið, en þetta er búið að vera fínt," sagði Nadía.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst. Leikurinn á föstudag hefst klukkan 19:00 og verður hann í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Smelltu hér til að kaupa miða á leikinn
Athugasemdir
banner