Vilhjálmur Kári Haraldsson, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er mættur til Manchester til að horfa á Evrópumót kvennalandsliða, en mikill spenningur er fyrir mótinu.
Ísland hefur leik í dag gegn Belgíu en leikurinn hefst klukkan 16:00 og fer fram á akademíuvelli Manchester City.
Vilhjálmur kom til Englands fyrir tveimur dögum ásamt fjölskyldunni en hann er þarna til að fylgja dóttur sinni, Karólínu Leu, eftir, en hún verður í lykilhlutverki á mótinu.
Sæbjörn Steinke ræddi við Vilhjálm á Fanzone-inu í Picadilly-garðinum í dag og fór yfir málin.
„Rosalega vel. Þetta er fallegur dagur, þannig þetta verður mjög skemmtilegt."
„Ég er kannski ekkert stressaður en með smá fiðring fyrir hönd okkar stelpna. Þetta verður spennandi og skiptir máli að byrja vel."
„Ég held að það hafi allir væntingar um að við vinnum þennan leik, en við vitum að þetta verður gríðarlega erfitt. Þetta er ekkert auðveldur andstæðingur, en innst inni viljum við vinna þennan leik."
„Það er æðislega gaman. Við erum hérna stór hópur, öll fjölskyldan, og búin að vera hérna í tvo daga. Það er stemning hérna, búinn að hitta Íslendinga og mjög gaman að þessu," sagði hann í lokin.
Athugasemdir























