Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. maí 2023 11:53
Elvar Geir Magnússon
Móðir Ronaldo blæs á kjaftasögurnar um sambandsmál sonar síns
Ronaldo og fjölskylda.
Ronaldo og fjölskylda.
Mynd: Getty Images
Móðir Cristiano Ronaldo segir það algjört bull að vandamál séu í sambandi sonar hennar og Georginu Rodriguez.

Spænska og portúgalska slúðurpressan sagði í síðasta mánuði að Ronaldo væri pirraður út í kærustu sína og þau væru á barmi þess að hætta saman.

Georgina er 29 ára fyrirsæta og áhrifavaldur og hún svaraði slúðursögunum með því að skrifa á samfélagsmiðla:

„Sá öfundsjúki skáldar upp orðróm, slúðrarinn dreifir því og hálfvitinn trúir því," skrifaði Georgina.

Nokkrum dögum síðar birti Ronaldo mynd af kossi þeirra skötuhjúa og skrifaði við: „Skál fyrir ástinni."

Mamma Ronaldo, Dolores Aveiro, segir að sögusagnir um að samband sonar síns væri á bláþræði væru einfaldlega falsfréttir.

„Þetta er lygi. Öll pör deila um hluti en það sem hefur verið skrifað er lygi," sagði Dolores við fjölmiðla en hún fór nýlega til Sádi-Arabíu og heimsótti Ronaldo, Georginu og börn þeirra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner