Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 16:23
Haraldur Örn Haraldsson
Úrslit Fótbolta Nördans í beinni á Livey í hádeginu á morgun
Mynd: Haraldur Örn Haraldsson

Úrslitaþáttur Fótbolta Nördans mun fara fram í beinni útsendingu á www.watch.livey.events á morgun klukkan 12:30. Þar munu Jóhann Skúli Jónsson og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson eigast við. Jóhann Skúli keppir fyrir hlaðvarpið sitt Draumaliðið, en Guðmundur Aðalsteinn keppir fyrir Fótbolti.net.


Báðir þessir menn hafa komist í úrslitin með því að sigra suma af mestu fótboltaheilum landsins allt frá 16-liða úrslitum. Í útsendingunni verður haldið góðu sambandi við fólk sem stillir inn, og góðar líkur á að áhorfendur geti unnið til verðlauna fyrir þáttöku í léttri spurningakeppni.


Slapp
banner