Breðablik gerði 1-1 jafntefli við Fylki í Árbænum, leikurinn var merkilegur fyrir Breiðablik þar sem nýr þjálfari leit dagsins ljós. Guðmundur Benediktsson er mættur við stjórnvölin og nældi í jafntefli í Lautinni.
Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 1 Breiðablik
,,Já, það er eitthvað sem við stefnum að, að vera ekki í fallsæti," sagði Guðmundur í samtali við fotbolta.net.
Aðspurður um leik liðsins hafði Guðmundur þetta að segja:
,,Ég var gríðarlega ánægður með það sem var lagt í leikinn af stráknunum, gríðarlegur kraftur í liðinu. Dró aðeins af okkur þegar leið á leikinn, skiljanlega segi ég, við vorum að spila á háu tempói og miklum krafti, vorum að skapa okkur færi og menn voru að taka hlaupin sín," sagði Guðmundur, oftar en ekki kallaður Gummi Ben.
,,Það er bara svona stundum, við fengum færi til þess að klára leikinn, en stundum bara dettur þetta ekki" sagði þjálfari Blika.
,,Við þurfum að skora meira, ég hefði haft miklu minni áhyggjur af þessu ef við hefðum skorað eitt mark og fengið eitt færi, en við fengum fullt af færum," sagði Guðmundur Benediktsson.
Aðspurður hvort þetta hafi verið besti leikur Blika í sumar svaraði Guðmundur um hæl,
,,Undir minni stjórn, já"
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir






















