Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
banner
   mán 11. júlí 2022 22:52
Anton Freyr Jónsson
Brynjar Gauti: Líður ágætlega að fá einhverja krossa á hausinn
Brynjar Gauti Guðjónsson, leikmaður Fram.
Brynjar Gauti Guðjónsson, leikmaður Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður bara mjög vel. Ég er pínu þreyttur en gríðarlega ánægður, þetta var geggjaður sigur í dag." sagði Brynjar Gauti Guðjónsson leikmaður Fram en hann gékk til liðs til Fram frá Stjörnuna fyrr í þessum mánuði.


Lestu um leikinn: Fram 1 -  0 FH

„Við vorum mjög þéttir varnarlega, það voru eitt eða tvö skot sem þeir áttu þarna í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik var það ekki neitt nema kannski færið hjá Steven Lennon í lokinn en annars vorum við bara gríðarlega þéttir, vörðumst vel og mikil vinnsla í liðinu."

Fram komst yfir snemma í seinni hálfleik en eftir það lagðist liðið til baka í staðin fyrir að halda áfram að reyna sækja á FH.

„Ætli það sé ekki bara blanda af báðu, menn fara reyna að verja eitthvað en svosem ætluðum ekkert að gera það. Ég hefði vilja sjá okkur stíga að aðeins meira krafti í þá þegar við skorum og hamra á járnið á meðan það var heitt en stöndum mjög vel og þeir eiga engan séns í okkur þannig séð."

Brynjar Gauti Guðjónsson var frábær í sínum fyrsta leik fyrir Fram en hann var mjög traustur í varnarlínu Fram og skallaði boltann hvað eftir annað burt eftir fyrirgjafir frá FH. 

„Bara þokkalegur. Það var smá ryð í manni og langt síðan maður spilaði 90.mínútur og maður var svona aðeins að átta sig á hlutunum, hvernig liðsfélagarnir eru og hvernig þeir eru að spila en mér líður ágætlega inn í teig að fá einhverja krossa á hausinn á mér."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner