Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 11:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: BBC 
HM félagsliða - Allt sem þú þarft að vita um mótið umdeilda
Gianni Infantino, forseti FIFA, við HM bikar félagsliða.
Gianni Infantino, forseti FIFA, við HM bikar félagsliða.
Mynd: EPA
Messi og félagar eru með.
Messi og félagar eru með.
Mynd: EPA
Manchester City og Chelsea eru fulltrúar Englands á mótinu.
Manchester City og Chelsea eru fulltrúar Englands á mótinu.
Mynd: EPA
Verið er að leggja gras á Mercedes-Benz leikvanginn fyrir mótið.
Verið er að leggja gras á Mercedes-Benz leikvanginn fyrir mótið.
Mynd: EPA
Leikmenn Al Ain mæta til Bandaríkjanna. Jonatas Santos og Erik.
Leikmenn Al Ain mæta til Bandaríkjanna. Jonatas Santos og Erik.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Rui Patricio hjá Al Ain.
Markvörðurinn Rui Patricio hjá Al Ain.
Mynd: EPA
Donald Trump ávarpaði samkomuna þegar dregið var í riðla.
Donald Trump ávarpaði samkomuna þegar dregið var í riðla.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Aðfaranótt sunnudags fer HM félagsliða af stað í Bandaríkjunum. Mótið er mjög umdeilt en það er spilað með nýju fyrirkomulagi og stendur yfir í mánuð.

HM félagsliða mun nú fara fram á fjögurra ára fresti en ekki árlega eins og áður var. Áður voru bara sjö lið sem tóku þátt en nú eru þau orðin 32 talsins.

Af hverju er mótið svona gríðarlega umdeilt?
Leikmannasamtök og deildarsamtök segja að fótboltadagatalið sé sprungið og álagið á fremstu leikmenn setji öryggi þeirra og heilsu í hættu. Álagið sé orðið alltof mikið og sífellt er verið að fjölga leikjum til að fá meiri pening í kassann. Það verða bara fimm vikur á milli úrslitaleiks HM félagsliða og fyrsta leik næsta tímabils í ensku úrvalsdeildinni og frí leikmanna að verða lítið sem ekkert.

Gríðarlegur hiti og dræm miðasala
Það eru ýmsar hindranir á veginum fyrir mótið og sumir leikjanna verða spilaðir í steikjandi hita. Þá hefur áhuginn alls ekki verið eins mikill og FIFA bjóst við. Miðaverð hefur verið lækkað í sífellu og einhverjar stúkur verða hreinlega lokaðar því mætingin verður slæm. FIFA hefur ekki viljað gefa fjölmiðlum almennilegar upplýsingar um stöðu á miðasölu.

Hvernig tryggja lið sér þátttöku og af hverju er Liverpool ekki með?
Lið frá öllum sex álfusamböndum FIFA taka þátt; Asíu, Afríku, Norður- og Mið-Ameríku, Suður-Ameríku, Eyjaálfu og Evrópu. Liðin sem hafa unnið 'Meistaradeildir' hverrar heimsálfu undanfarin fjögur ár fá þátttökurétt. Frá Eyjaálfu er það liðið sem hefur besta árangurinn í gegnum þessi fjögur ár.

Evrópa á flesta fulltrúa eða alls tólf lið. Horft er á sigurvegara síðustu fjögurra ára í Meistaradeild Evrópu og svo eru hin liðin valin í gegnum stigasöfnun á styrkleikalista UEFA. Miðað er við að mest geti verið tvö félög frá sama landinu, ekki nema fleiri tryggi sér þátttökurétt með því að vinna Meistaradeildina.

Með þessum reglum nær Red Bull Salzburg frá Austurríki að tryggja sér sæti sem félagslið frá landi sem er hæst á listanum af þeim sem hefur ekki fyllt sætin sín tvö. Manchester City og Chelsea hafa bæði unnið Meistaradeildina á síðustu fjórum árum og fylla sæti Englands. Því er ekki pláss fyrir Liverpool þó liðið sé í fjórða sæti á styrkleikalista UEFA.

Flest álfusamböndin fá fjóra fulltrúa en Bandaríkin fá aukasæti sem gestgjafi. Suður-Ameríka fær sex lið og Eyjaálfa eitt.

Hversu mörg lönd eiga lið á mótinu?
Mótið inniheldur lið frá 20 löndum, sjö lönd frá Evrópu eiga fulltrúa.

Argentína (River Plate og Boca Juniors)
Austurríki (Red Bull Salzburg)
Bandaríkin (Seattle Sounders, Los Angeles FC og Inter Miami)
Brasilía (Palmeiras, Flamengo, Fluminense og Botafogo)
Egyptaland (Al Ahly)
England (Chelsea og Manchester City)
Frakkland (Paris St-Germain)
Ítalía (Inter og Juventus)
Japan (Urawa Red Diamonds)
Mexíkó (Monterrey og Pachuca)
Marokkó (Wydad AC)
Nýja-Sjáland (Auckland City)
Portúgal (Porto og Benfica)
Sameinuðu arabísku furstadæmin (Al Ain)
Sádi-Arabía (Al-Hilal)
Suður-Afríka (Mamelodi Sundowns)
Suður-Kórea (Ulsan HD)
Spánn (Real Madrid og Atletico Madrid)
Túnis (Esperance de Tunis)
Þýskaland (Bayern München og Borussia Dortmund)

Af hverju er Lionel Messi með?
FIFA ákvað að gefa gestgjöfum Bandaríkjanna aukasæti sem gestgjafar og láta það sæti til Inter Miami fyrir að vinna Stuðningsmannaskjöldinn 2024, bikar sem það lið sem er með besta árangurinn fyrir úrslitakeppnina.

Ákvörðunin hefur verið gagnrýnd og kenningar um að FIFA sé bara að tryggja það að Lionel Messi yrði með á móti sem hafði ekki vakið þann áhuga eða athygli sem vonast var eftir.

Hvernig er fyrirkomulag mótsins?
Fyrirkomulagið er svipað og við þekkjum frá HM landsliða. Liðin 32 eru í átta fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils fara í úrslitakeppnina. Úrslitaleikurinn verður 13. júlí. Ólíkt HM landsliða verður ekki leikur um þriðja sætið.

A-riðill: Palmeiras, FC Porto, Al Ahly, Inter Miami

B-riðill: Paris St-Germain, Atletico Madrid, Botafogo, Seattle Sounders

C-riðill: Bayern München, Auckland City, Boca Juniors, Benfica

D-riðill: Flamengo, Esperance Sportive de Tunisie, Chelsea, Los Angeles FC

E-riðill: River Plate, Urawa Red Diamonds, Monterrey, Inter Milan

F-riðill: Fluminense, Borussia Dortmund, Ulsan, Mamelodi Sundowns

G-riðill: Manchester City, Wydad, Al Ain, Juventus

H-riðill: Real Madrid, Al Hilal, Pachuca, Salzburg

Gríðarlegar fjárhæðir í boði
Til að reyna að gera þetta umdeilda mót eftirsóknarvert fyrir félagslið þá verður 775 milljóna punda pottur sem skiptist milli þátttökuliðanna. Sigurliðið getur unnið 97 milljónir punda. Þá munu félögin fá ákveðna upphæð vegna markaðsgildis og þátttöku en þar fá evrópsku félögin mest.

Hvar verða leikirnir spilaðir?
Allt mótið verður spilað í Bandaríkjunum, ári áður en þjóðin heldur HM landsliða ásamt Kanada og Mexíkó. Leikið verður á tólf leikvöngum.

Atlanta, Mercedes-Benz Stadium
Charlotte, TQL Stadium
Cincinnati, Bank of America Stadium
Los Angeles, Rose Bowl Stadium
Miami, Hard Rock Stadium (þ.á.m. opnunarleikurinn)
Nashville, GEODIS Park
New Jersey, MetLife Stadium (þ.á.m. úrslitaleikurinn)
Orlando, Camping World Stadium
Orlando, Inter&Co Stadium
Philadelphia, Lincoln Financial Field
Seattle, Lumen Field
Washington DC, Audi Field

Hvar getur þú horft á leikina?
DAZN streymisveitan hefur tryggt sér útsendingaréttinn á HM félagsliða. Allir 63 leikirnir verða sýndir í opinni dagskrá. Athyglisvert er að skömmu eftir að þetta var tilkynnt keypti Sádi-arabískt fyrirtæki stóran hlut í DAZN.



Leikjadagskráin fyrstu vikuna:

sunnudagur 15. júní
00:00 Al Ahly Cairo - Inter Miami FC
16:00 Bayern - Auckland City
19:00 PSG - Atletico Madrid
22:00 Palmeiras - Porto

mánudagur 16. júní
02:00 Botafogo - Seattle Sounders
19:00 Chelsea - Los Angeles FC
22:00 Boca Juniors - Benfica

þriðjudagur 17. júní
01:00 Flamengo - Esperance
16:00 Fluminense - Dortmund
19:00 River Plate - Urawa Red Diamonds
22:00 Ulsan - Mamelodi Sundowns

miðvikudagur 18. júní
01:00 Monterrey - Inter
16:00 Man City - WAC Casablanca
19:00 Real Madrid - Al Hilal Riyadh
22:00 Pachuca - Salzburg

fimmtudagur 19. júní
01:00 Al Ain - Juventus
16:00 Palmeiras - Al Ahly Cairo
19:00 Inter Miami FC - Porto
22:00 Seattle Sounders - Atletico Madrid

föstudagur 20. júní
01:00 PSG - Botafogo
16:00 Benfica - Auckland City
16:00 Flamengo - Chelsea
22:00 Los Angeles FC - Esperance

laugardagur 21. júní
01:00 Bayern - Boca Juniors
16:00 Mamelodi Sundowns - Dortmund
19:00 Inter - Urawa Red Diamonds
22:00 Fluminense - Ulsan
Athugasemdir
banner