Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 14:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Fer fögrum orðum um þjálfarana - „Núna erum við að uppskera"
Kvenaboltinn
Guðni með húfuna og bróðir hans Hlynur með honum.
Guðni með húfuna og bróðir hans Hlynur með honum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigrinum gegn Breiðabliki fagnað.
Sigrinum gegn Breiðabliki fagnað.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Maya Lauren Hansen kom til FH í vetur. Hún er markahæst í liðinu með fjögur mörk í átta deildarleikjum og eitt mark í tveimur bikarleikjum.
Maya Lauren Hansen kom til FH í vetur. Hún er markahæst í liðinu með fjögur mörk í átta deildarleikjum og eitt mark í tveimur bikarleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið FH hefur gert virkilega vel í upphafi tímabilsins, liðið er við toppinn og er eina liðið sem hefur unnið Íslandsmeistarana í Breiðabliki til þessa. FH teflir fram mjög ungu liði, margar uppaldar hjá félaginu og spilar liðið skemmtilegan fótbolta.

Í dag mætir liðið Þór/KA í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins, leikurinn hefst klukkan 17:30 og fer fram í Boganum á Akureyri.

Fótbolti.net ræddi við yfirmann fótboltamála hjá FH, Davíð Þór Viðarsson, í gær.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  3 FH

„Það hefur verið unnið mjög gott starf kvennamegin í yngri flokkunum hjá okkur. Þetta hafa mikið til verið sömu þjálfararnir, samstarfið á milli meistaraflokks og niður í yngri flokkana hefur gengið mjög vel, og núna erum við að uppskera."

„Það sem hefur líka gerst er að við höfum náð að styrkja okkur á réttum stöðum. Aldís (Guðlaugsdóttir) er reyndar meidd núna, hún var búin að vera frábær fyrir okkur, Arna (Eiríksdóttir) kemur til okkar fyrst á láni og svo alfarið fyrir síðasta tímabil. Bæði Deja (Sandoval) og Maya (Lauren Hansen) sem komu til okkar í vetur hafa smollið mjög vel inn í þetta - og auðvitað fleiri leikmenn."

„Það eru öflugar stelpur fæddar 2006-2008 og svo er Ingibjörg (Magnúsdóttir) fædd 2009. Elísa Lana (Sigurjónsdóttir), sem dæmi, er á tuttugasta aldursári, er búinn að vera í meistaraflokki í 4-5 ár. Hún hefur verið að taka skrefið úr því að vera efnileg í að vera mjög góð."

„Það er mikið eftir af þessu móti og við þurfum að halda okkur á jörðinni með þetta. Við þurfum að hlutina jafnvel og við höfum gert þá. Ég er viss um að innan ekki svo langs tíma, ef við náum að halda þessum kjarna, þá getum við farið að fikra okkur ennþá hærra."


Bræðurnir Guðni Eiríksson og Hlynur Svan Eiríksson eru þjálfarar FH liðsins. Hversu mikið kredit eiga þjálfararnir skilið?

„Mjög mikið, bræðurnir lifa fyrir þetta, eru algjörlega 'all-in'. Þeir eru með mjög skýra sýn á hvernig þeir vilja spila fótbolta og eru búnir að vera ótrúlega flottir frá því að þeir komu inn í þetta. Þeir láta vel í sér heyra, ég segi stundum við þá að lækka aðeins róminn í sér á hliðarlínunni," segir Davíð á léttu nótunum.

„Þeir eiga mjög stóran þátt í þessu og hafa verið mjög virkir og naskir á að finna réttu leikmennina til að bæta við hópinn. Þeir eru duglegir að hlusta á að við viljum gefa ungum leikmönnum tækifæri og þeir vilja gera það líka. Þeir eru ótrúlega flottir í sínu starfi," segir Davíð.
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur R. 8 7 1 0 20 - 5 +15 22
2.    Breiðablik 8 6 1 1 35 - 7 +28 19
3.    FH 8 6 1 1 17 - 8 +9 19
4.    Þór/KA 8 5 0 3 15 - 13 +2 15
5.    Fram 8 4 0 4 11 - 17 -6 12
6.    Valur 8 2 3 3 9 - 11 -2 9
7.    Stjarnan 8 3 0 5 9 - 19 -10 9
8.    Tindastóll 8 2 1 5 10 - 14 -4 7
9.    Víkingur R. 8 1 1 6 11 - 22 -11 4
10.    FHL 8 0 0 8 3 - 24 -21 0
Athugasemdir
banner
banner
banner