Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Trent þurfti að leiðrétta sig - „Hef beðið eftir þessu í langan tíma“
Mynd: Real Madrid
Trent Alexander-Arnold var kynntur hjá Real Madrid í dag, en hann kom til félagsins frá Liverpool fyrir 10 milljónir punda.

Alexander-Arnold sagði á blaðamannafundinum það draum að rætast að spila fyrir Real Madrid.

Einnig talaði hann reiprennandi spænsku á fundinum. Hann virtist vera að lesa texta af skjá, en margir hafa hrósað framburði leikmannsins.

Það hefur ýtt frekar undir þann orðróm að hann hafi verið að læra spænsku síðustu tvö árin.

Á blaðamannafundinum ræddi hann skiptin og virtist um leið tala af sér.

„Þetta er mjög spennandi fyrir mig og dagur sem ég hef beðið eftir í langan tíma,“ sagði Trent, sem þurfti síðar að leiðrétta svar sitt. „Þegar ég talaði um að bíða í langan tíma þá meinti ég í tvær vikur, ekki ár.“

Stuðningsmenn Liverpool eru svekktir yfir framkomu Trent í garð félagsins síðasta árið. Liverpool reyndi ítrekað að halda honum, en hann ákvað að spila út samninginn og fara til Real Madrid nánast frítt.

Liverpool náði að kreista fram 10 milljónir punda aðeins af þeirri ástæðu að Real Madrid þurfti hann fyrri vegna HM félagsliða.

Brottför hans skilur eftir súrt bragð í munni stuðningsmanna og margir á því að hann hafi svert arfleifð sína hjá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner