Aleksandar Kolarov, fyrrum leikmaður Man City, Lazio, Roma og Inter, verður aðstoðarþjálfari Christian Chivu hjá Inter á næstu leiktíð.
Chivu tók við Inter á dögunum af Simone Inzaghi sem tók við sem þjálfari Al Hilal í Sádi-Arabíu.
Chivu tók við Inter á dögunum af Simone Inzaghi sem tók við sem þjálfari Al Hilal í Sádi-Arabíu.
Kolarov er 39 ára gamall Serbi en hann hætti sem þjálfari U21 landsliðs Serbíu og serbneska sambandið greindi frá því að það væri vegna þess að hann væri að taka við starfi aðstoðarþjálfara Inter.
Kolarov lauk ferlinum hjá Inter en hann spilaði þar frá 2020-2022. Kolarov spilaði sem vinstri bakvörður og lék 94 landsleiki fyrir hönd Serbíu.
Athugasemdir