Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Textor tilbúinn að selja sinn hlut í Crystal Palace
Mynd: EPA
bandaríski viðskiptajöfurinn John Textor er tilbúinn að selja hlut sinn í Crystal Palace svo félagið fái þátttökurétt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Mikið hefur verið rætt og ritað um málið undanfarið en Crystal Palace á það á hættu að vera meinað þátttöku í keppninni þar sem Textor á hlut í bæði Crystal Palace og franska liðinu Lyon.

Textor á 43% hlut í enska félaginu og stjórnar því ekki ákvarðanartökum félagsins. Fjármálaeftirlit UEFA hefur beðið Crystal Palace um sönnun þess efnis.

Enskir fjölmiðlar greina nú frá því að Textor sé tilbúinn að selja sinn hlut fyrir 175 milljónir punda en Josh Harris og David Blitzer, sem eiga hlut í félaginu nú þegar, eru líklegastir til að kaupa Textor út.
Athugasemdir
banner
banner