Félagaskiptaglugginn fyrir HM félagsliða lokaði í gær og geta félög því ekki bætt lengur við sig leikmönnum fyrir mótið.
Chelsea vildi fá Jamie Gittens frá Dortmund en félögin komust ekki að samkomulagi. Sebastian Kehl, íþróttastjóri Dortmund, tjáði sig um viðræðurnar.
Chelsea vildi fá Jamie Gittens frá Dortmund en félögin komust ekki að samkomulagi. Sebastian Kehl, íþróttastjóri Dortmund, tjáði sig um viðræðurnar.
„Við náðum ekki samkomulagi um Jamie því við höfðum ekki sömu hugmyndir um virði leikmannsins. VIðræðurnar voru mjög virðulegar. Við höfum verið í góðum samskiptum við Chelsea í mörg ár," sagði Kehl.
„Við erum ánægð að Jamie verður nú hluti af HM hópnum okkar og erum í skýjunum með að hann verði áfram."
Athugasemdir