Manchester United opinberaði í morgun nýjan heimabúning liðsins fyrir næsta keppnistímabil.
Það er Adidas sem framleiðir búninginn eins og raunin hefur verið frá 2015.
Það er Adidas sem framleiðir búninginn eins og raunin hefur verið frá 2015.
Nýi heimabúningurinn er til heiðurs leikvangi félagsins, Old Trafford, en á bakinu er „Theatre of Dreams," áletrað.
Bruno Fernandes og Amad Diallo, tveir af bestu leikmönnum liðsins, eru mjög áberandi í kynningunni á nýja búningnum. Fernandes var nýverið sterklega orðaður við Al-Hilal í Sádi-Arabíu en hann ákvað að vera áfram hjá United.
Nýliðið tímabil var hörmulegt fyrir Man Utd og spurning hvort næsta tímabil verði betra í þessum nýja búningi. Það getur í raun ekki orðið mikið verra.
Manchester United's new home shirt pays tribute to Old Trafford ????? pic.twitter.com/O4crYX6tiJ
— B/R Football (@brfootball) June 12, 2025
Athugasemdir