Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 09:13
Elvar Geir Magnússon
Stöð 2 Sport orðin Sýn Sport
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allar sjónvarpsstöðvar Stöðvar 2 sameinast í dag undir merki Sýnar. Í tilkynningu frá Sýn, sem áður hét Vodafone, segir að tilgangurinn sé að skapa samræmdara vörumerki og einfalda ásýndina.

Sýn Sport er nýtt heiti á Stöð 2 Sport en stöðin mun meðal annars sýna enska boltann á næsta tímabili eftir að hafa unnið Símann í síðasta uppboði um sjónvarpsréttinn.

Íþróttaáskriftinni hjá Sýn er áfram skipt upp í tvo pakka, erlendan og íslenskan.

„Við kveðjum þessi ástsælu vörumerki en varðveitum frumkvöðlaandann sem í þeim býr til að sækja fram og veita enn betri þjónustu til framtíðar," segir í tilkynningu frá Sýn en hér má sjá hvað sjónvarpspakkarnir kosta.

Þess má geta að útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM 957 og X977 halda sínum nöfnum.
Athugasemdir
banner