Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum leikmaður ÍBV semur við félag í skosku úrvalsdeildinni
Richard King í leik með ÍBV.
Richard King í leik með ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jamaíkumaðurinn Richard King er að ganga í raðir St Mirren í Skotlandi.

King lék sautján leiki með ÍBV þegar liðið féll úr Bestu deildinni 2023. Hann kom til liðsins á láni fyrir tilstilli Heimis Hallgrímssonar, þáverandi landsliðsþjálfara Jamaíku.

Þessi 23 ára miðvörður var í janúar orðaður við skoska stórliðið Rangers í Glasgow, en fór þá ekki þangað.

Þá var sagt að ensku úrvalsdeildarfélögin West Ham United, Brighton, Newcastle og Aston Villa hafi öll verið að fylgjast með leikmanninum.

Núna er hann búinn að semja við St Mirren sem hafnaði í sjötta sæti skosku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Hann gerir tveggja ára samning við félagið með möguleika á þriðja árinu.
Athugasemdir