
Þór/KA 1 - 3 FH
0-1 Katla María Þórðardóttir ('11 )
1-1 Karen María Sigurgeirsdóttir ('21 )
1-2 Maya Lauren Hansen ('52 , víti)
1-3 Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('87 )
Lestu um leikinn
0-1 Katla María Þórðardóttir ('11 )
1-1 Karen María Sigurgeirsdóttir ('21 )
1-2 Maya Lauren Hansen ('52 , víti)
1-3 Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('87 )
Lestu um leikinn
FH er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir að hafa unnið Þór/KA, 3-1, í Boganum á Akureyri í dag.
Gestirnir úr Hafnarfirði voru fyrri til að koma boltanum í netið í leiknum en Katla María Þórðardóttir gerði það á 11. mínútu eftir aukaspyrnu Birnu Kristínar Björnsdóttur.
Birna laumaði sendingu með fram grasinu inn fyrir á Kötlu sem skoraði með góðu skoti í fjærhornið.
Forystan varði ekki lengi. Tæpum tíu mínútum síðar jafnaði Karen María Sigurgeirsdóttir fyrir heimakonur með frábæru skoti fyrir utan D-bogann og í vinstra hornið.
Staðan í hálfleik jöfn en FH-ingar náðu að komast aftur yfir snemma í þeim síðari.
Valgerður Ósk Valsdóttir féll í teignum eftir viðskipti sín við Agnesi Birtu Stefánsdóttur. Klaufagangur í vörninni og var það Maya Lauren Hansen sem skoraði úr spyrnunni.
FH-ingar gátu gert út um leikinn tæpum hálftíma fyrir leikslok er Ída Marín Hermannsdóttir kom boltanum til hliðar á Mayu sem lét vaða á markið en Jessica Grace Berlin varði frá henni og frákastið frá Ingibjörgu Magnúsdóttur.
Færin voru á báða bóga undir lok leiks en það voru FH-ingar sem náðu að gulltryggja sigurinn með marki Elísu Lönu Sigurjónsdóttur, sem komst í lausan bolta á eigin vallarhelmingi. Hún tók á rás og alveg upp að vítateig Þórs/KA áður en hún skoraði með góðu skoti í fjærhornið.
FH komið í undanúrslit ásamt ÍBV og Val. Þetta er í annað sinn á síðustu tveimur árum sem FH kemst þangað, en síðast komst liðið þangað árið 2023 en tapaði þá fyrir Víkingum, 2-1, sem gerðu sér lítið og fóru alla leið það árið.
Athugasemdir