Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Gyökeres: Megnið af því sem hefur verið sagt er rangt
Mynd: EPA
Viktor Gyökeres, framherji Sporting í Portúgal, sendi frá sér stutt skilaboð á Instagram í dag, en hann segir margt af því sem hefur verið skrifað um hann sé rangt.

Sænski framherjinn er á förum frá Sporting í sumar, en það er komið babb í bátinn.

Frederico Varandas, forseti félagsins, segist aldrei hafa lofað því að selja Gyökeres fyrir 70 milljónir evra, en Gyökeres og föruneyti hans er sagt bálreitt yfir því.

Gyökeres er með 100 milljóna evra riftunarákvæði í samningnum, en Varandas átti að hafa gefið munnlegt loforð á síðasta ári um að selja hann fyrir aðeins 70 milljónir ef hann tæki eitt ár í viðbót með liðinu.

Varandas segir að umboðsmaður Gyökeres sé að spila einhvern leik og að hann hafi aldrei lofað neinu og hefur framherjinn nú uppfært stuðningsmenn og fjölmiðla um stöðuna.

„Það er mikið umtal í augnablikinu en megnið af því er rangt. Ég mun tala þegar tíminn er réttur,“ sagði Gyökeres á Instagram.

Manchester United er sagt hafa mikinn áhuga á Gyökeres, en hvort félagið hafi ráð á því að greiða 100 milljónir evra verður að fá að liggja á milli hluta í bili.

Gyökeres er einnig sagður á óskalista Arsenal, en það verður að teljast ólíklegt að hann fari þangað þar sem félagið er í viðræðum við RB Leipzig um slóvenska framherjann Benjamin Sesko.
Athugasemdir
banner
banner