Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gabriel vill fá „fyrirbærið" Rodrygo til Arsenal
Mynd: EPA
Gabriel Magalhaes, miðvörður Arsenal, vill fá landa sinn Rodrygo til London. Þeir eru samherjar í brasiíska landsliðinu og Rodrygo hefur verið orðaður í burtu frá Real Madrid og við Arsenal síðustu vikur.

Arsenal vill styrkja sóknarlínuna sína og Gabriel vill fá Rodrygo til félagsins, en hann veit þó ekki hvort það sé möguleiki á því.

„Ég veit ekki hvort hann kemur. Ég væri til í það, en hver veit? Hann er fyrirbæri fyrir mér, einstakur leikmaður."

„Fólk er mikið að segja nafnið hans. Ef það væri undir mér komið, þá auðvitað. Eins og ég sagði, þá er hann fyrirbæri,"
sagði Gabriel í Podpah hlaðvarpinu í heimalandinu.
Athugasemdir