Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 11:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telur bara fimm örugga í HM hóp Englands
Enska landsliðið fagnar marki.
Enska landsliðið fagnar marki.
Mynd: EPA
Gabby Agbonlahor, sérfræðingur talkSPORT, telur aðeins fimm leikmenn örugga í enska landsliðshópinn fyrir HM 2026 ef liðið kemst þangað.

England hefur ekki farið vel af stað í þjálfaratíð Thomas Tuchel en liðið rétt marði Andorra og tapaði gegn Senegal á dögunum; fyrsta tap Englendinga gegn Afríkuþjóð.

„Thomas Tuchel þarf að taka margar ákvarðanir og hann hefur ekki mikinn tíma," sagði Agbonlahor.

„Ég er bara með fimm örugga í HM hópinn en það eru Pickford, Rice, Bellingham, Saka og Kane."

„Það eru aðrir leikmenn sem eru nálægt en þeir þurfa að standa sig á næsta tímabili."

Adrian Durham, útvarpsmaður á talkSPORT, nefndi þrjá aðra sem honum finnst öruggir; Marc Guehi, Ezri Konsa og Cole Palmer.

Það verður svo sannarlega áhugavert að fylgjast með þróun Tuchel hjá enska landsliðinu en ekki byrjar þetta vel.
Athugasemdir
banner
banner